Beinagrind við rúmgaflinn-2020

ÓTTAST UM LÍF MITT


Óttast
um líf mitt
ef riddararnir
átta sig á
að sverðin
sem ég smíðaði
þeim eru styrkt
með bölbænum

Beinagrind við rúmgaflinn

I

BÁTUR

 Báturinn
 sem bíður þín
 veit hvað þarf
 til að sigla
 með þig yfir hafið

 Kann að forðast
 skerin og skrímslin
 sem verða á veginum

 En þú hikar samt

TILRAUNIR

 Allar þessar
 tilraunir
 sem þú
 gerir á mér
 færa okkur
 ekkert nema
 sársauka
 og ótta

HVERT SKAL HALDA

 Hvert skal halda
 þegar hliðin
 eru lokuð og læst

 Engin leið áfram

 og þú
 kærir þig ekki um
 að halda til baka
 þar sem ógnin bíður

SOFANDI DRAUMAR

 Er regnið buldi
 á þakinu
 fann ég draumana
 sofandi á gólfinu

 Gat ekki vakið þá
 þó stytti upp
 og sólin færi að skína

HLEKKIR

 Einhverntíma
     enginn veit hvenær
 munt þú
 brjóta
 hlekkina
 sem halda mér
 föstum

SPOR

 Minnumst
 spora formæðranna
          og -feðranna
 þegar við
 máum þau út
 með okkar eigin

NÆTURGESTUR

 Kemur á miðnætti

 Dvelur
 þar til
 birtir af degi

 Hverfur
      veist ekki hvert

 Kemur aftur
 er hugur myrkvast

Á ÞVÆLINGI

 Hann
 sem hefur verið
 á þvælingi
 allt sitt líf
 segist eiga
 heima í fjallinu
 en fæddur
 í skóginum
 sem hann leitar
 enn

VÆNGIR

 Vængir okkar
 gerðir úr
 litríkum fjöðrum
 sem svo margir
 ásælast
       vilja eiga 

SÁRAR ILJAR

 Iljarnar sárar
 af hvössu grjóti
 er geng um
 til að hlýða
 kalli fuglanna
 sem seiða
 mig til sín

SVARTIR FUGLAR

 Fuglarnir
 litlu og svörtu
 sem flugu
 yfir hús þitt
 skyggðu á sólina
 sem hefur
 ekki sést
 á ný 

ENGIR FROSKAR

 Þar sem
 ég á heima
 engir froskar
 sem get ort um

 Óska þess
        stundum
 að þeir væru
 í trjálundinum
 við hús mitt

SÆSKRÍMSLI

 Sæskrímslið
 sem rak
 höfuð sitt
 upp úr sjónum
 starði í forundran
 á bátinn
 og blikkaði
 okkur um borð
 áður en það
 hvarf í djúpið

EINEYGÐI MAÐURINN

 Eineygði
 maðurinn
 sem þú
 mætir á götu
 vekur upp
 minningar
 um hrafninn
 sem kroppaði
 næstum
 úr þér augun
 forðum

LÖNG GANGA UM SKÓGINN

 Kem að rjóðri
 eftir langa göngu um skóginn

 Tylli mér á trjábol
 og ræði við fuglana
 sem hafa beðið mín

 svo lengi

ÖSKUR VILLIDÝRA

 Fólk
 í illa byggðum
 kofum og hreysum
 óttast öskur
 villidýra
 í auðninni

 Veit að þau
 renna á lykt
 af svita og blóði
 sem berst
 langar leiðir

FASTUR Í VEF

 Fastur í vef
 köngulóarinnar
 sem nálgast
 hægt en örugglega
 bíð ég eftir
 stungu
 eiturbroddanna
 og biti
 kjálkana sterku

SLÖNGUTEMJARAR

 Eltum
 slöngutemjarana
 hvert sem þeir fóru

 Fylgdum þeim
 jafnvel niður í
 ormagryfjuna
 þaðan sem enginn
 á afturkvæmt

Á HVERJUM MORGNI

 Sé þig
 á hverjum morgni
 sitja uppi í trénu
 sem geng hjá
 og þú
 heilsar mér
 ávallt glaðlega

SÖGUR VINDSINS

 Vildi að ég gæti heyrt
       og munað
 allar sögur vindsins
      hvort sem hann
      hvíslar þær
      eða öskrar

HIMINNINN ALLUR

 Himinninn allur
 liggur fyrir
 fótum þínum

 Þarft aðeins
 að taka skrefið

 Þetta eina
 litla skref

SKÆRT LJÓS

 Af höndum þeirra
 lýsir skært ljós

 Beinist að þér

 sem stendur
 á veginum miðjum

 bíður komu þeirra

ÆVISTARFIÐ

 Gamli maðurinn
 situr á ströndinni
 í skugga stóra trésins
 og minnist
 ævistarfsins
 ,,að bera vatnið á brott"
 svo ekkert yrði eftir

 Nú hafa
 aðrir tekið við

DAGSVERKI LOKIÐ

 Held
 í kirkjugarðinn
 er kvöldar

 Eftir rölt
 og stefnulaust ráf
 um borgina

 Skríð
 í gröf mína

TÁR MÁNANS

 Tár mánans
 sem grætur
 að nóttu
 drýpur á
 höfuð okkar
 sem reynum
 að hugga hann

BROS

 Brosir ávallt
 þínu bjartasta
 er dauðinn nálgast

 Honum bregður svo
 að hann hörfar

 Segist koma síðar

BLÓMIN Í GARÐINUM

 Blómin
 í garðinum
 kalla á þig
 svo seiðandi
 að þú veður
 að hlýða

 Ferð
 og gróðursetur
 þig í moldinni
 við hlið þeirra

ÞIÐ FERÐIST

 Þið ferðist
 í vagninum
 gullslegna
 um himinhvolfið
 og lítið
        af og til
 niður á okkur
 sem störum
 í sólina

FERJUMAÐURINN

 Ferjumaðurinn
 bauðst til
 að ferja okkur
 yfir fljótið

 Við stigum um borð
 og hann ýtti frá

 Leitar enn
 að bakkanum
 handan fljótsins

ÓTTAST UM LÍF MITT

 Óttast
 um líf mitt
 ef riddararnir
 átta sig á
 að sverðin
 sem ég smíðaði
 þeim eru styrkt
 með bölbænum

GERIR ALLT

 Gerir allt sem þú getur
 til að halda rakanum
 og morgundögginni
 á hörundi þínu
 sem þornar fljótt
 í brennheitri sólinni

DRAUMUR

 Gekk
 fram á draum
 liggjandi á
 frosinni jörð

 Það var ekki
 minn draumur 

GAMALL LAMPI

 Er þú rekst á
 gamla lampann
 eftir öll þessi ár
       jafnvel aldir
 manstu það 
 sem fer á stjá
 þegar ljósið er kveikt


II

KROSSINN

 Tekur krossinn
 úr vasanum
 og neglir á hann
 blæðandi sól
 sem verður
 á vegi þínum

Í GARÐI

 Í garði mínum
 vaxa engin blóm
 Aðeins gras
 steinar og mold

Á KROSSGÖTUM

 Stend
 á krossgötum
 og bíð
 eftir þeim
 sem getur tekið við

 Enginn
 fer hér um
 lengur

EF

 Ef þú
 missir tökin
 og fellur
 í myrkrið
 bíð ég
 eftir þér

SPEGILLINN GRÆTUR

 Spegillinn
 grætur
 í hvert sinn
 er skuggi þinn
 fer hjá

ÓTTI

 Óttast
 að þeir rætist
 draumarnir
 sem hefur alið
 með þér
 um aldir

ÞEGAR ÞÉR HENTAR

 Þú
 kemur
 þegar þér
 hentar
 og hvíslar
 því sem
 þú vilt
 að ég viti

HÉR HEF ÉG VERIÐ

 Skipið
 sem siglir
 að eyjunni
 hvar hef
 dvalið
 um aldir
 gæti borið
 mig brott
 kærði ég
 mig um það

SVO LENGI

 Bíð
 svo lengi
 eftir kunnuglegu
 fótatakinu
 sem aldrei
 kemur

ÓTTAST

 Óttast
 þokuna
 og mistrið
 sem lykur
 um mig
 dag hvern
 er opna
 augun

AÐ HAUSTI

 Að hausti
 muna hreiðrin
 enn
 ungana
 sem fæddust
 að vori

HVARFST

 Hvarfst
 í skýin
 eftir að
 fingur þinn
 straukst
 við kinn
 mína

HÁLFT TUNGL

 Á hálfu tungli
 vaknar
 þorstinn
 í brjóstinu
 og ýlfrið
 í barkanum

VAKNA SNEMMA

 Vakna snemma
         á undan þér
 til að minna þig á 
 fleininn
 sem þú rakst
 á kaf í hold mitt

TEYGIR

 Teygir
 hendurnar upp
 til tunglsins

 Stelur þér
 bita og bita

HESTAR

 Á hestana
 vaxa vængir
 og þeir fljúga
 inn í skýin
 þar sem
 nýtt land
 bíður þeirra

VEFUR

 Spann vef minn
 í húsi þínu
 í þeirri von
 að þú
 festist í honum

ÞEIR SEM FÆDDUST

 Þeir
 sem fæddust
 úr höfði þínu
 berjast
 um það
 þegar þú
 liggur sofandi
 í rúminu

ÞÚ HVERFUR

 Þokast
 hægt og hægt
 inn í grámann
 sem umlykur þig
 þar til
 hvefur mér sjónum

REIÐI

 Reiður
 sjálfum mér
 fyrir að
 kveikja á
 enn einu kertinu
 sem vísar ykkur
 leiðina hingað
 til mín

FORNAR SÖGUR

 Augun segja
 ævafornar sögur
 sem enginn heyrir
 sem enginn skilur
 nema ég

GAMALT HLIÐ

 Gamalt
 ryðgað
 hliðið
 lokast
 læsist
 um leið
 og þú
 stígur inn
 í garðinn

RADDIR Í LOFTI

 Heyrir
 raddir í lofti
      háværar
      ágengar 
 sem aðrir
 nema ekki
 utan daufan óm

LOFORÐ

 Bíður enn
 eftir því
 sem lofað
 var í árdaga
 en hefur
 enn ekki sést
 og veist ekki
 hvað er

VÆNGIR Á BAKI

 Stígur út úr
 eyðimörkinni
 með vængi á bakinu

 Við
 lútum þér
 af ótta
 við vængina

HVÍSL

 Hvíslið
 kristaltært og skýrt

 Skil
 þó ekki orðin

BARÁTTA

 Berst
 við skrímslin
 sem guðirnir
 senda þér

 Hefur
 stundum sigur

MARGLIT BLÓM

 Í glugga
 marglit blóm
 veifa og kinka kolli
 í hvert sinn
 er geng hjá

HLUSTAÐ

 Heyri raddir
 handan þilsins

 Greini
 þó ekki orðaskil

 Ekki enn

DRAUGAR

 Þrátt fyrir
 hita og birtu
 eru draugarnir
 enn á sveimi

 Birtast
 er minnst varir

SVEFNLAUSAR NÆTUR

 Næturnar
 svefnlausar
 þegar þú
 gengur
 um huga minn

 Hávært
 fótatak þitt
 heldur fyrir
 mér vöku

JÁRNSMIÐURINN

 Járnsmiðurinn
 sem í árdaga
 barði saman
 stjörnurnar
 og vetrarbrautina
 lítur yfir verk sitt
 nokkuð sáttur

ÞUNG SPOR

 Hvert spor
 svo þungt:
 sekkur
 æ dýpra
 í fenið


III

HRINGRÁS

 Í hvert
 sinn
 er ég
 slepp frá
 þér

 eltirðu mig
 til þess eins
 að fanga
 á ný

 Aftur og aftur
 um alla eilífð

VEGIRNIR SEM FETA

 Og vegirnir
 sem feta
 liggja ekkert

 að því er virðist

 Eru allt
 blindgötur
 og botnlangar

ÞANGAÐ

 Tréð
 vísar veginn

 Segir að
 þangað eigi ég
 að stefna

 Þangað liggur leið mín

 Aðeins þangað

KVEIKTU ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ

 Kveiktu
 áður en þú ferð
 svo ég
 verði einn
 í ljósinu
 sem skín
 svo skært
 er þú hefur
 yfirgefið mig

BLÓM

 Hvert skipti
 sem hann færir
 þér blóm
           og það gerir hann oft

 kastarðu þeim
 fyrir fætur hans

 svo hann
 traðki á þeim

FÓLK ÚR DRAUMI

 Fólkið úr draumnum
 hverfur er ég vakna

 nema sú sem
 stendur við rúmið
 og horfir ásakandi á mig

 Eins og
 það sé mér
 að kenna að hún
 varð eftir

GAMALL DRAUGUR

 Draugurinn
 sem vakti upp
 í kirkjugarðinum
 forðum
 ásækir mig enn

 og hefur gert
 síðan hann reis
 upp úr aldagamalli
 gröf sinni

 Næ ekki
 að kveða
 hann niður
 þrátt fyrir
 ótal tilraunir

TEL DAGANA

 Sit í fjörunni
 og tel dagana
 þar til
 skútan sem
 lagði úr höfn
 áður en ég fæddist
 snýr aftur
 með það sem
 ég bíð eftir

HVERT BRÉF

 Hvert bréf
 sem berst
 yfir fjótið
 fyllir mig ótta

 Hræddur um
 að það sé
 frá þér
 sem hvarf
 fyrir öldum

VIL EKKI TRUFLA

 Vil ekki
 trufla
 svefn þinn
 né raska
 ró þinni
 þegar kem
 svífandi gegnum
 vegginn
 og herði
 að hálsi þínum

VEIT ALDREI

 Veit aldrei
 hvar skal
 hefjast handa
 er líkami
 liggur
 fyrir framan mig
 og ég veg
 hnífinn
 í hendinni

HUGSANLEGA FROSINN FASTUR

 Ef þú rækist á mig
 að vetri til og ég væri
 frosinn fastur við jörðina

 hugsanlega frosinn í hel
           ekki alveg viss samt

 myndirðu
       án efa
 ganga hjá

 án þess að taka eftir mér

HLIÐIN OPNAST

 Hliðin opnast
 upp á gátt
 og þú
      sem hefur dvalið fyrir
      innan svo lengi 
 hikar og tvístígur

HELD TIL HIMINS

 Held
 til himins
 í vagni mínum
 til að kveikja
 á stjörnu
 sem lýsir ekki

ELDHAF

 Flýgur
 á vængjum
 þínum
 inn í
 eldhafið
 sem hefur
 logað
 svo lengi

 Þeir sviðna ekki

LOKS LAUS

 Eftir ótal
 tilraunir
 síðustu aldir
 tókst mér loks
 að losna
 undan
 álögunum
 sem lagði
 á mig sjálfur
 í ógáti

 Sakna þeirra
 hálfpartinn

RÍFÐU HJARTAÐ

 Rífðu
 hjartað
 úr brjósti þínu

 feldu það
 í skugganum

 svo ég
 megi finna það
 öldum síðar

 Koma því
 fyrir í
 brjósti mínu

KERTIÐ Á SKENKNUM

 Legg ekki í
 að kveikja á kertinu
 sem stendur
 á skenknum
        og hefur gert alla tíð

 Grunar að
 veröldin fuðri upp 

VERUR Í SJÓ

 Verurnar sem rísa
 úr hafinu
 stara á þig
 sem stendur
 í fjöruborðinu
 og reyna ekki
 einu sinni að
 lokka þig til sín

VON

 Fer að klettinum
 við ströndina
 á hverjum degi

 Vonast til
 að sjá höfuð þitt
 gægjast upp
 úr sjónum
 eins og forðum

ENGINN VEIT

 Enginn veit
 hvernig gamla konan
 fékk þig
 til að grafa
 svo djúpa holu
 við hliðna
 á trjánum og rósarunnunum
 að þú kemst ekki
 upp aftur

SJÓFERÐ

 Sagðir
 að báturinn
 bæri mig varla

 gæti sokkið
 undan mér

 og þú ætlaðir
 að standa
 á bryggjunni
 þar til
 ég hyrfi
 í hafið

STÍGUR NIÐUR

 Þú
 stígur niður
 af krossinum

 dregur nagla
 úr lófum og fótum

 kastar þeim
 í hrúgu
 sem stækkar stöðugt

 Hverfur í mistrið

Á BJÖRTUM MORGNI

 Á björtum
 morgni
 ber vindurinn
 stjörnur
 inn um
 gluggann
 þar sem
 þær eyðast
 og verða
 að engu

LÁGT HLJÓÐ

 Heyri
 lágt hljóð
 sem minnir
 á hvæs í snáki
 og veit að
 hann
 er kominn
 að heimta
 sál mína
 sem ég
 losaði mig við
 fyrir löngu

NEGLUR

 Strýkur
 bak mitt
 og
 neglurnar
 beittar og langar
 skerast
 lengra
 og lengra
 og dýpra
 og dýpra

FRAMMI FYRIR ÞÉR

 Sú
 sem stendur
 frammi fyrir þér
 á myrkum
 skógarstígnum
     og lýsir af
 svo viðkvæm
 að brotnar
 í þúsund mola
 er þú andar á hana

GENGIÐ Í KLAUSTUR

 Fylgi munknum
 um klaustrið
 stórt og þögult

 Reipið í hendi hans
 vefst brátt um mig

EINS OG KVEIKUR

 Berð eld
 að hári þínu
 sem logar
 eins og
 kveikur á kerti

 og líkaminn
 bráðnar
 eins og vax
 sem ég þarf
 að skafa upp

HÆRRA OG HÆRRA

 Breiðir
 úr vængjunum
 og flýgur
 hærra og hærra

 Svo hátt
 svo langt
 að ég kem
 ekki auga
 á þig lengur

TÓNAR

 Tónarnir
 sem berast
 úr fjarska
 seiða mig til sín

 Átta mig
 of seint:

 Þeir eru
 ekki ætlaðir mér

VILLIST Í ÞOKU

 Svo oft
 villst í þokunni
 sem er stöðugt
 fyrir augunum

 Rata þó
 ævinlega til baka

 Til þess eins
 að villast

 aftur og aftur

ÞRÁTT FYRIR

 Sumt má
 aldrei segja
 þrátt fyrir
 sterkt ljósið
 sem að þér beinist
 og höggin
 sem dynja
 á líkamanum

BEINAGRIND VIÐ RÚMGAFLINN

 Beinagrindin
 sem stendur
 við rúmgaflinn
 óskar einskis
 nema holds
 utan á sig

 Er komin
 að sækja þitt

RÓSIR Í GLUGGA

 Lít
 rósir í glugga
 og óska þess
           stundum
 að hafa
 einhvern til að gefa

KUNNUGAR SLÓÐIR

 Þekki
 svo vel
 hvern klett
 og tind
 í fjallinu
 að get gengið
 þar um með
 bundið fyrir augu
             án þess að hrapa

GULIR AKRAR

 Gulir akrar
 svo langt
 sem augað
 eygir

 Heldur
     í fyrstu
 séu sólblóm

 en
 manst þá:
 þau vaxa ekki hér